Jöfur atvinnuhúsnæði s. 534-1020 kynnir:
Erum með í einkasölu iðnaðarhúsnæði á góðum stað á hafnarsvæði Reykjavíkur á Örfirisey.
Húsnæðið hefur verið notað í fiskvinnslu í áratugi.
Óskað er eftir tilboði í eignina.
Í húsnæðinu eru vinnslusalir, rými fyrir kæligeymslur og frystirými, skrifstofurými, starfsmannaaðstaða og góð aðstaða sem þarf fyrir hvers konar matvælavinnslu.
Gott athafnasvæði er í kringum húsið og eru plön að hluta til steypt.
Lausfrystir staðsettur á 2. hæð og hráefnislyftur sem fyrir eru í húsnæðinu, geta fylgt með í kaupunum.
Niðurföll og rafmagnslagnir eru sniðin fyrir matvælavinnslu.
Jarðhæð, er um 1.300 fm., skiptist í tvo vinnslusali, annar með niðurfallsrennum í gólfi. Kæligeymsla, búningsherbergi og geymslurými. Alls eru 5 innkeyrsludyr á hæðinni.
2. hæð, er um 1.300 fm., skiptist í 4 vinnslusali, frystigeymslu, matsal, búningsaðsöðu og skrifstofu (70 fm.).
3. hæð: 70 fm. skrifstofa.
Mögulegt er að kaupa eða leigja hluta af húsnæðinu. Hafið samband við Magnús til að fá nánari upplýsingar um það.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kristinsson, löggiltur fasteignasali í síma 861-0511, [email protected]
Hafðu beint samband við starfsmenn Jöfurs:
Helgi Már Karlsson löggiltur leigumiðlari - 897-7086
Ólafur Jóhannsson löggiltur leigumiðlari - 824-6703
Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali - 863-5868
Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali - 861-0511
Kynntu þér fleiri eignir og þjónustu Jöfurs atvinnuhúsnæðis á www.jofur.is