Jöfur atvinnuhúsnæði s. 534-1020 kynnir:
Til sölu nýtt húsnæði fyrir verslun, þjónustu eða skrifstofu að Efstaleiti 25, 103 Reykjavík, alls 276,7 fm.
Afhending á húsnæðinu fer fram við kaupsamning.
Í Efstaleitinu rís nútímalegt íbúðahverfi á einum besta stað í borginni. Efstaleitið er sannkallað miðborgarhverfi í göngufæri við helstu verslunar- og þjónustukjarna borgarinnar og falleg útivistarsvæði.
Alls birt stærð 276,7 fm. á jarðhæð. Góðir verslunargluggar snúa út á götuna og er eignin staðsett á horni hússins.
Húsnæðið selst tilbúið undir tréverk, en mögulegt er að semja við seljanda um innréttingu rýmisins.
Eigninni fylgja tvö sérmerkt stæði í bílageymslu neðanjarðar. Mögulegt er að kaupa fleiri stæði í bílageymslunni.
Skilalýsing miðast við eftirfarandi meginatriði:
- Húsnæðið er full frágengið að utan en ófrágengið að innan.
- Veggir eru spartlaðir og málaðir í ljósum lit.
- Inntök fyrir loftræstikerfi eru komin inn í rýmið.
- Vatnslagnir eru lagðar í veggjum að salernisaðstöðu og kaffirými.
- Rafmagnsinntak er í töflu.
- Gólfefni, mögulegir milliveggir, rafmagnstengingar og ljós, frágangur lofta og innréttingar fylgja ekki.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali, í síma 861 0511, tölvupóstur
[email protected]
Hafðu beint samband við starfsmenn Jöfurs:
Helgi Már Karlsson löggiltur leigumiðlari - 897-7086
Ólafur Jóhannsson löggiltur leigumiðlari - 824-6703
Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali - 863-5868
Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali - 861-0511
Kynntu þér fleiri eignir og þjónustu Jöfurs atvinnuhúsnæðis á www.jofur.is