Jöfur atvinnuhúsnæði s. 534-1020 kynnir:
Til sölu gott 271,3 m² iðnaðar- og lagerhúsnæði við Smiðshöfði 9 / Stórhöfði 18. Komið er að húsnæðinu Stórhöfðamegin. Góð aðkoma er að húsnæðinu. Háar innkeyrsludyr. Laust við samning.
Loft hæð er 3,6 metrar.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 863-5868, [email protected].
Nánari lýsing: Um er að ræða snyrtilegt 271,3 m² iðnaðarhúsnæði. Húsnæðið er mest einn salur fyrir utan að búið er að stúka um 35 m² geymslurými innst í húsnæðinu og salerni. Lofthæð er um 3,6 m undir bita.
Gólf eru máluð í húsnæðinu og til staðar er tengill fyrir 3ja fasa rafmagn. Niðurfall er við innkeyrsludyr. Hitablásari er í rýminu auk miðstöðvarofns. Stórar innkeyrsludyr eru á húsnæðinu sem eru um 3,0 m á hæð og breidd 3,4 m. Við hlið innkeyrsludyra eru inngöngudyr. Aðkoma að eigninni er góð, beint inn frá Stórhöfða.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Jöfur ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
---------------------------
Kaupandi greiðir stimpilgjald af kaupsamningi, sem er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila af fasteignamati eða samkvæmt annarri upphæð sem sýslumaður ákveður hverju sinni. Greiði kaupandi hluta kaupverðs með láni, þá greiðir hann lánveitanda lántökugjald og skjalagerðarkostnað. Kaupandi greiðir allan kostnað við yfirtöku áhvílandi lána. Kaupandi greiðir þinglýsingu kaupsamnings, afsals og veðskjala og er kostnaður við það kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Kaupandi greiðir umsýslugjald til Jöfurs ehf. að fjárhæð kr. 77.500,-
Hafðu beint samband við starfsmenn Jöfurs:
Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali - 863-5868
Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali - 897-7086
Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali - 824-6703
Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali - 861-0511
Kynntu þér fleiri eignir og þjónustu Jöfurs atvinnuhúsnæðis á www.jofur.is